Ok sir, using this little doll, could you please indicate *where* he touched you?

Ok sir, using this little doll, could you please indicate *where* he touched you?
Albert: *vill ganga frá innkaupum í ísskápinn*
Pabbi: *bendir á litlu tveggja þrepa tröppuna sem Albert notar sem stól* „Á ég að rétta þér tröppuna?“
A: *hleypur að stiganum sem liggur upp á efri hæð* „Tröppu? Þessa tröppu? Ætlarðu að rétta mér alla þessa tröppu?“
Brotnaði hitamælir hjá okkur í kvöld og vitiði — kvikasilfur er einn sérstakur andskoti.
Beið eftir að allir litlu droparnir söfnuðust saman í einn stóran dropa og upp risi pínulítill en miskunnarlaus T-1000
Barn les fyrir foreldri: „…og þar er mikið af selum, tje punktur dje punktur…“
„Pabbi! Þú mátt ekki sjá mig þegar ég er að stelast!“
Ég bauð honum að láta mig vita þegar ætlar að stelast
Hann hugsaði málið í smástund og kinkaði svo kolli
Pirraður Albert kvartar yfir öllu í morgunsárið, en róast á endanum, eftir 2x brauð með sultu og tvo þætti af Hæ Sámi.
Hann skilur samt ekki alveg, því venjulega er ekkert sjónvarp á morgnana og bara hafragrautur á boðstólum: „Pabbi, af hverju leyfirðu mér allt?“
Kvöldmatur
Albert klárar af diskinum
Pabbi: „Viltu meira?“
A: *Hristir höfuðið ákveðinn. Bendir hneykslaður á mylsnu á diskinum* „Ég er ekki búinn!“
Ég í hliðstæðum heimi:
Næstum alltaf þegar ég ætla að segja brauðgerðarhús segi ég lyfjagerðarhús, og öfugt
Á svipuðum tíma var reynt að losna við tökuorðið bakarí og í staðinn notað brauðgerðarhús.
— Íslensk málnefnd (@malnefnd) September 4, 2020
Albert: *fer inn í geymslu* „Pabbi, hvar er litli hamar?“
Pabbi: „Ööööö af hverju vantar þig hamar?“
A: „Til að hama dekkið á ruslabílinn!“
Eftir að suða heilmikið í og takast loksins að sannfæra pabba um að koma út að leika tekur Albert sér 20 mínútur í að klæða sig til að fara út með pabba.
Pabbi: „Jæja, ertu tilbúinn?“
Albert: „Ég þarf að pissa. Uppi“
… 5 mínútur…
P, niðri: „Hvernig gengur að pissa?“
A: „Illa. Ég ætla fyrst að leika mér í Barbí og síðan að pissa“
P:
A: „Ertu að hlæja?“
Albert leikur sér með bíla
Pabbi: *tekur bíl og byrjar að keyra* „brummmm“
Albert: „Þú kannt ekki að keyra bíl. Ég á að leika með alla bílana“
P: „Ó! En hvað á ég þá að gera?“
A: „Æ, farðu bara í símann!“