siggimus vs the cows

  • í bíltúr Albert: „Sjúkrabíll og brunabíll! Einhver var að meiða sig og það var eldur“ Pabbi: „Já?“ A: „Kannski var einhver með eld og sykurpúða og potaði í eldinn og meiddi sig!“

  • Augu

    PSA: Ef þér þykir vænt um augun þín, ekki sjúga hálsbrjóstsykur með menthol rétt á meðan þú ert með grímu

  • am grúmet

    Albert (4): „Pabbi, hvernig skrifar maður am grúmet?“ Pabbi: „Am hvað?“ A: „Æm krúmet“ P: „Am krúmet? Lommér sjá“ A: „Æm krú-met“ P: „Ahhhh, ertu í Amonngöss!?? I emm bil sje err e tvöfaltvaff emm a té e“

  • úfur í sauðagæru?

  • Pabbi bardúsar í eldhúsinu Albert (4 ára), inni í stofu: „Pabbi! Hvernig á að skrifa jól?!“ P: „Joð…“ A: „Kva svo?“ P: „Ó! … Kanntu að gera..?“ A: „Kva svo?“ P: „Ell … Af hverju ertu að skri…“ Úr spjaldtölvunni berast jólalög

  • ÞAÐ ER HÆGT AÐ ÞUMLA ÞUMLA! ÞAÐ ER HÆGT AÐ ÞUMLA ÞUMLA Í MESSENGER!! ég endurtek: ÞAÐ ER HÆGT AÐ ÞUMLA ÞUMLA Í MESSENGER!! ég er kominn með nýtt hobbý!

  • Þurfti að skjótast í svona klukkutíma Þegar ég kom aftur kom pjakkurinn grátandi út: „Pabbi, ég saknaði þín! Ég saknaði þín svoooo mikið!“ Svo hoppaði hann upp um hálsinn á mér og knúsaði mig eins og hann hefði ekki séð mig í mánuð. Og ég fékk eitthvað í augað

  • Pabbi bardúsar í eldhúsinu Albert, smá veikur inni í stofu: „Já! Nú veit ég hvernig á að gera graut!“ P: *kíkir inn í stofu* A: *situr og horfir á Stundina okkar þar sem börn kenna okkur að gera hafragraut með eplamús* Pabbi bardúsar enn í eldhúsinu Albert, smá veikur inni í stofu: „PABBI!“ P: *hleypur…

  • Þurfti að sækja Albert snemma á leikskólann því hann er kominn með hita. A, á leið út í bílinn: „Veikurið lét mig sofna eins og litlabarn!“

  • Eyði meiri tíma en ég kæri mig um að viðurkenna í vangaveltur um hvort líkindin með barnvænt og banvænt hafi einhvern tíma valdið veseni

  • Rúgbrauð með papriku og krakkavítamíni

    Þegar Albert biður um rúgbrauð með papriku og krakkavítamíni fær Albert rúgbrauð með papriku og krakkavítamíni Og þegar Albert biður um meira rúgbrauð með papriku og krakkavítamíni fær Albert meira rúgbrauð með papriku og krakkavítamíni

  • Tannálfurinn

    Telma: „Hey! Ég gleymdi að kíkja undir koddann í morgun til að sjá hvað ég fékk frá tannálfinum!“ Pabbi: *svelgist á kornflexi. lítur skelkaður á mömmu, sem horfir döpur í gaupnir sér* Sandra: *horfir ásakandi á foreldra sína og hristir höfuðið* T: *kemur niður aftur. leið* S: „Tannálfurinn er í sóttkví!“