siggimus vs the cows
-
Við horfum á Our Planet í dýrðlegu 4K Pabbi fer að velta fyrir sér tönn náhvala, hvort þeir festist ekki stundum óvart. Börnin: „Já, þeir festast stundum í ís…“ Pabbi: „Lærðuð þið um náhvali í skólanum?“ Börn: „Nei, í Hvolpasveit!“
-
Illt
Sandra, 10 ára, kemur heim úr skólanum: „Pabbi mér er illt!“ Pabbi: „Æ, ertu veik?“ S: „Við vorum í kynfræðslu í dag“
-
Góðu fréttirnar: Albert missti fyrstu tönnina! Slæmu fréttirnar: Það gerðist í leikskólanum og tönnin finnst hvergi Good news: Albert lost his first tooth today Bad news: It happened in the kindergarten, and no one has seen the tooth since
-
Omaþingin
Börnin skiptast á að velja lag í spjaldtölvunni Fjögurra ára drengur: „Hvernig skrifar maður omaþingin?“ Fimm mínútum af spurningum og vangaveltum síðar:
-
Spáið í því, það er stórt H á Grænlandi og stórt L á Noregi og þess vegna er búið að vera rok hér í heila fokkings viku
-
Dýralíf
Í næsta nágrenni við vinnuna er fjölbreytt dýralíf, sem sjá má í sporum í snjónum. T.d. Krummar Kanínur Voffar Ekki krummar, en samt fuglar Mýs
-
Albert og Embla
Albert er búinn að uppgötva Emblu. Sest af og til niður og spyr hana einhvers eða bara spjallar…
-
Ungviðið horfir á Stundina okkar
-
Viltu giska?
Albert: „Veistu hver átti afmæli í dag?“ Pabbi: „Nei, hver?“ A: „Viltu giska? Það byrjar á Elísabe…“
-
Hlaðvarp
Var að fá tips um hlaðvarp og bætti nýjasta þættinum í biðröðina … það er númer 25 í röðinni. Ég þarf semsagt að hlusta í rúma 30 klukkutíma áður en kemur að því. Ég mun koma gersamlega af fjöllum þegar þátturinn byrjar Það er frábært að hafa ekki þurft að fara í vinnuna í vetur,…
-
Vinna?
Ósvinna er betri en engin vinna?
-
Lestarkeppni grunnskólanna?