Bakaríið Petit pain
Slagorð: Láta hverju deigi nægja sína þjáningu
Blog
-
-
Hræddur
Albert: „Ég vaknaði í nótt og var hræddur!“
Sandra: *eyðir klukkutíma í að búa til og prenta út mynd* „Við hengjum þetta upp við rúmið þitt og næst þegar þú vaknar sérðu fyndna rassa og hættir að vera hræddur!“
Fyndnir rassar -
rugad ruðifrE
.rugad ruðifre rav atteÞ .kabárutfa tú mok iðafirks gé mes tlla go inni uniðrobalkyl á nnikkat irtsniv lit nirö tsitsef innis uniE
-
Of seint!!
Ekki koma hingað -
18. júlí
Albert: „Ég vildi að það væri 18. júlí“
Pabbi:
„Ha, nú af hverju?“
A: „Af því að þá sofum við einu sinni og svo er Húgó eins árs!“
Sko 18. júlí. Daginn áður en hvolpurinn verður ársgamall. Ekki 7 dögum seinna, sem er daginn áður en Albert sjálfur verður fimm ára…
-
Sæng
Albert: „Ég vil sofa með pabba sæng!“
Mamma: „Já en þá er pabbi ekki með neina sæng?“
A: „Hann má fá mína!“
Sængasamanburður -
Nýtt orð
Lærði nýtt orð
hundsbelgjaglás -
Vináttumerki
Pabbi: „Nei sko, fékkstu verðlaun?“
Albert: „Þetta er vináttumerki! Við vorum að æfa okkur í að vera vinir og tala um hverju við erum góð í!“
P: „Og í hverju ert þú góður?“
A: „Að hoppa! Og standa á einum fót!“
Vináttumerki sem Albert fékk í leikskólanum -
Helvíti er…
Arlanda flugvöllur. Ég er þar með öll börnin og það eru tveir tímar í flug. Að eilífu.
-
Helvíti
Ég er úrvinda á Arlanda flugvelli með öll börnin og það eru alltaf tveir tímar í flug
-
Tilfinningar
Albert: Öskurgrenjar yfir grimmilegum örlögum lítils flamingóunga í sjónvarpinu.
Líka Albert: Blikkar ekki meðan hann hleypur um allt í Among Us og afhausar þrjá í beit.
Líka líka Albert: Getur ekki sofnað yfir áhyggjum af vesalings Bertu sem þarf að eyða nóttinni alein á neðri hæðinni
Berta