Blog

  • Breyttu lagi með einum staf

    Veðurfræðingar fljúga

    Pea of love

    Corn in the USA

    Kvel ég í draumahöll

    Hamingjan er héri

    Fjöllin hafa bakað

    Sjón er kominn heim

    Bor í Vaglaskógi

    Veðurfræðingar sjúga

  • Tólfti

    Albert í morgun: „Pabbi, er tólfti í dag?“

    Pabbi: „Ööö, é veitiggi…“ *athugar* „Já það er tólfti! Hvernig vissirðu?“

    A, ekki orðinn fimm ára: „Það var ellefti í gær!“

  • #metoo

    Hef átt erfitt með að koma hugsunum mínum í orð, svo ég geri orð Starra á FB að mínum

  • Hérna… hversu algeng aukaverkun af AstraZeneca er að heilinn í manni skipti óumbeðinn yfir í sumartíma, og eru þess mörg dæmi að aukaverkun komi fram áður en þú færð sprautuna?

  • Klukkan

    Þegar þú ert búinn að gera hafragraut og klæða þig til að fara út með hundinn þegar konan þín kemur hálfsofandi og bendir þér á að klukkan er sex en ekki sjö…

  • SMS

    Sími pípir. SMS.

    Hjartað missir úr nokkur slög, gleðitár birtist á hvarmi. Ég … ég er að fara í bóluse..!!

    SMS:


    Uppfært kl. 22.31:

    Plot twist!

  • Núll á ensku

    Klukkan er 5.22 að nóttu

    Albert: „Hvernig segir maður núll á ensku?“

    Pabbi: *rumskar* „Öööö, zero“ *sér að Albert er búinn að kasta sænginni af sér. breiðir yfir hann*

    A: „Ég get ekki hugsað með sæng“ *kastar sænginni af sér* „Get bara hugsað með ekki sæng“

  • 12 er minna en 49

    Albert: „12 er minna en 49!“

    Pabbi: „Já..?“

    A: „En þú ert 49 en samt er 12 miklu stærra!“

    P: „Haaa? Hvaða 12 er miklu stærra?“

    A: „Húsið okkar!“ (12 = húsnúmerið)

  • Gat

    „Vinkona mín segir að það sé dónalegt að segja ómægat af því að það er dónalegt að segja annarra manna nafn“

  • Vírar

    Þegar tungumálavírum slær saman í hausnum á þér og þú segir skvermetrar

  • Bakaríið Petit pain

    Slagorð: Láta hverju deigi nægja sína þjáningu