siggimus vs the cows

  • Sandra, næstum 11 ára, um frönsku söngkonuna: „Einn fjörutíu og sjö?! ÉG er stærri en það! Hún má ekki einusinni sitja frammí í bíl“

  • 22

    Albert: *tékkar á spjaldtölvunni sem var í hleðslu* „Það er tuttutvö prósent. Má ég taka samband?“ Pabbi: „Já“ A: „Það er tuttu tvö prósent, og það er tuttugasti annar maí!“ P: *athugar dagsetningu*

  • Öryggi

    Þegar þú vaknar og það er ekkert rafmagn á húsinu og þú fiktar þig áfram í rafmagnstöflunni þar til bara tvö öryggi eru úti og ísskápurinn og frystiskápurinn og hinn frystiskápurinn úti og reynir í ofboði að finna rafvirkja á laugardagsmorgni og ert kominn með kvíðahnút af því að kannski er lekaliðinn farinn og þú…

  • 5 rúsínur

    Albert: „Má ég fá 5 rúsínur?“ Pabbi: „Já!“ A, stærðfræðingur: „Fyrst tvær rúsínur og svo þrjár rúsínur!“ Albert: „Fimmtíu er næstum sextíu … sjötíu, áttatíu, níutíu, hundrað!“ Pabbi: „Alveg rétt! Þú ert orðinn svo flinkur að reikna!“ A: „Fjörutíu og níu er næstum fimmtíu, svo þú ert næstum hundrað!“

  • Fjölnota Get out of jail free kort

  • S/O á svartklædda manninn í duftkirkjugarðinum sem veifaði svartri uppspenntri regnhlíf ógnandi upp í loftið. Ég skildi ekkert …fyrr en ég sá grágæsirnar tvær sem hann miðaði regnhlífinni á og stýrði fimlega um himininn

  • Þegar hann er ekki í Among us When not playing Among us

  • Bangsi litli

    Lesum í gærkvöldi Albert opnar bókina, les, hægt: „Hér … sjáið … þið … Bangsa“ A: *lítur á pabba* „Af hverju stendur ekki Einu sinni?“

  • AB

    Löngu eftir að ég gleymi nafninu mínu mun ég muldra lactobacillus acidophilus, bifidobacterium bifidum

  • Ég veit um eitt lag

    Pabbi: *kveikir á Spotify og ætlar að spila tónlistina úr Kardemommubænum fyrir krakkana* Albert: „Pabbi, ég veit um eitt lag!“

  • Stimpill

    Pabbi: „Fékkstu stimpil í fimleikum?“ Albert: „Nei“ P: „Af hverju?“ A: „Ég var að meiða“ P: „Af hverju varstu að meiða?“ A: „Ég vildi ekki fá stimpil“ P: „En hvern varstu að meiða?“ A: „Má ekki segja“ P: „Nú, af hverju ekki?“ A: „Útaf Covid“

  • Breyttu lagi með einum staf

    Veðurfræðingar fljúga Pea of love Corn in the USA Kvel ég í draumahöll Hamingjan er héri Fjöllin hafa bakað Sjón er kominn heim Bor í Vaglaskógi Veðurfræðingar sjúga