Albert: “Pabbi, átt þú smjattsmapp?“
Blog
-
-
Skip
Í göngutúr í fjöru
Pabbi: *bendir út á haf* „Sérðu stóra skipið sem er að sigla þarna! Sérðu hvað það fer hratt!“
Albert: „Er þetta sjóræningjaskip?“
-
Skrifa
Pabbi: „Hvað ertu að skrifa?“
Pabbi: *wtf?!* ??
Albert: „Bíddu, ég er ekki búinn…“
Pa:
-
Smakka
Mamma gerði hrísgrjónapönnsur og bauð börnunum að smakka
Telma, 9 ára:
„Smakka?! Hvað meinarðu?“
Albert, 5 ára: „Að smakka þýðir að finna hvort eitthvað er gott á bragðið eða ekki!!!“
-
Sneikæjó
Albert, 2. ágúst, í síma frá Lettlandi: „Ertu búinn að setja inn sneikæjó?“
Pabbi: „Æi! Gleymdi því!“
Albert, 26. ágúst, kominn heim aftur, alveg að fara að bursta tennurnar: „Manstu þegar ég spurði ertu búinn að setja inn sneikæjó? og þú sagðir „Gleymdi því!“ … Það á að segja ÉG gleymdi því!“
-
Nei takk, ómögulega
Allhvöss eða hvöss suðaustanátt -
Búðu til nýja íþróttagrein á Ólympíuleikunum með því að fjarlægja einn staf úr grein sem er þar:
- hólabretti
- jólabretti
- kotfimi
- köfubolti
- andbolti
- ýfingar
- jólreiðar
- strandbak
Búðu til nýja íþróttagrein á Ólympíuleikunum með því að fjarlægja einn staf úr grein sem er þar:
— siggi mús (@siggimus) July 25, 2021
-hólabretti
-kotfimi
-köfuboltiÞað komu líka tillögur frá öðrum -
Albert: „Ef að Sandra borðar hrossaflugu þá breytist hún í flugu.
… eða hest!“
-
Það má ekki
Albert: „Pabbi, ef þú sérð hurð, ekki pissa bakvið hana!“
-
Ég trúi ekki að ég þurfi að spyrja að þessu, en hvernig er best að losna við mús sem er komin inn (í leyfisleysi)?
-
Sandra baked a cake but didn’t mention that she had doubled the recipe so we didn’t manage to tell her to take a bigger pan.
In addition the cake got burned a bit. We named it Fagradalsfjall.
Kakan Fagradalsfjall Fjallið Fagradalsfjall -
Mála
Foreldrar: *mála herbergi*
Dóttir: „Í hvert skipti sem þú málar, minnkar herbergið“