
Blog
-
Frábær helgi í geggjuðum selskap.
í gær rættist „gamall“ draumur Alberts þegar hann fékk að fara í ökuskólann í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Loksins kann Albert að keyra.
Í morgun var sveitaferð með leikskólanum og nú seinnipartinn dró hann mig út í óvissuferð sem endaði niðri í fjöru svo hann gæti sýnt mér helli sem þau fundu í fjöruferð í leikskólanum um daginn
Ég er gersamlega úrvinda, en á móti fékk ég vel ráðlagðan dagskammt af öllum þeim fjörefnum sem einhverju skipta


Í ökuskólanum 
Nestispása 
Í ökuskólanum 
Ís! 
Lítil grafa í sveitaferð 
Tvö krútt! 
Við bústörfin 
Á eftir að sleikja útum 
Hin víðfræga róla í Miðdal 
ALBERT Í HELLINUM 
On top of the world 




Skipstjórinn í stafni 

Ég er fastur!! 
Kuðungur (með Nutella inní) 
-
Í Húsdýragarðinum, pt. ii
Hmmm, hvað ætli pjakkurinn sé að lesa af veggnum inni í kofanum?

Engir dauðir menn -
Í Húsdýragarðinum, pt. i
Ég fyrir 3 vikum: Ég ætla í fjölskyldugarðinn 21. maí og leyfa pjakknum að fara í ökuskólann
Allir Íslendingar með börn í morgun: Ég er með geggjaða hugmynd!
-
Mynd til að lita
Albert: „Pabbi, mig langar að prenta mynd til að lita“
Pabbi: „Mynd af hverju?“
A: *hugsar mikið* „Lítil eyja með einu tré“

Lítil eyja með einu tré -
Allt?
Pabbi: „Þú ert að gera allt nema það sem ég bað þig um; pissa og klæða þig?“
Albert: „Er ég að gera ALLT nema það? Er ég þá að fá mér ís og poppkorn og horfa á Squid Game Netflix?“
-
Bækur
Einhver: „Og hvað gerir þú?“
Ég: „Skrifa bækur sem enginn les“
6 hours of debugging can save you 5 minutes of reading documentation
— Jakob ? (@jcsrb) May 12, 2021 -
Í skóla barnanna velur skólastjórinn árlega bekk af handahófi og tekur fullan þátt í öllu.
Í dag fékk hún að fara með 6. bekk í stærðfræði, dönsku, fatasund og skeggræða sætustu strákana í skólanum í frímínútum
-
Fangelsi

„Vondurinn í fangelsi“ Fórum á Kardemommubæinn í gær og Albert spurði mikið um rimlana á glugganum þegar Kasper, Jesper og Jónatan voru komnir í tugthúsið



