Blog

  • Frúin í Hambort

    Einn uppáhalds leikur Alberts þessa dagana er hans eigin útgáfa af Frúnni í Hamborg

    A: „Það má ekki segja ísskápur! Eða hurð. Og það má ekki heldur segja hákarl … það má segja já, en ekki nei!“

  • Albert teiknar

    Albert kom heim með myndir úr leikskólanum í dag. Hér eru þær bestu

  • Telja

    Albert, rétt rúmlega hálfnaður að „telja“ 5m málband. Upphátt.


    Síðar, löngu síðar: „…fjögurhundruð fimmtíu og fjórir, fjögurhundruð fimmtíu og fimm, fjögurhundruð fimmtíu og sex… Hey! Eins og í Squid Game Netflix!“

  • Börnin þegar ég vakna 6.30 til að fara út með hundinn áður en ég fer í vinnuna:

    • erfitt að vekja þau kl 7.30

    Börnin þegar ég má sofa út:

    • glaðvöknuð og skælbrosandi á slaginu 6
  • Vegan

    Ég var á efri hæðinni eitthvað að bardúsa í gær. Ég heyrði Albert kalla eitthvað niðri, en var upptekinn. Nokkrar mínútur…

    Albert: „…ef þú hlýðir mér ekki og hjálpar mér ekki að ná í brúna bílinn þá tek ég allan matinn frá þér og þú verður vegan!“


    A: „Hvað er vegan á ensku?“

    P: „Vegan er vegan á ensku“

    A, alls ekki sannfærður: „Veistu það kannski ekki?“


    P: „Hvað þýðir að vera vegan?“

    A: „Að vera vegan er að borða bara nammi“

  • Bókstaflega alltaf

    Sandra, við Telmu: „Manstu að einu sinni var pabbi alltaf að gera svona *hnusar út í loftið* og segja „Hmmmm, ég finn lykt af montrassi…“ hann var bókstaflega ALLTAF að segja það!“