Blog
-
eitthvað á þessa leið voru jólin okkar 🙂
gleðilega jólarest! (þó seint sé í bossa klipið)
Merry rest of Christmas everyone (better late than never!)
Sandra teiknaði mynd af sér. Þarna er gras, bolti, sól og ský sem úr kemur úrhellisrigning 
Sandra teiknaði líka pabba jólasvein. Stundum er snjókallinn snjókall, stundum er hann Telma 
Besta jólagjöfin í ár var frá Telmu til okkar allra 😀 
Ance gerði íslugtir 🙂 
í 5 mínútur suðuðu þær og báðu um Skoppu og Skrítlu, en svo dáleiddi Emil þær og suðið þagnaði 
Sandra gerði kall úr leir 
Telma reynir að draga Söndru á nýja sleðanum -
Stelpurnar og Ance sátu og pökkuðu inn gjöfum.
Sandra: „Pabbi, við erum búin að pakka inn þremur pökkum!“
Pabbi: „Vá, eru rosa margir sem fá pakka frá okkur?“
S: „Já!“
P: „Kannski fáum við einhverja pakka líka?“
S: „Neinei! Við þurfum ekki pakka,“ sagði hún og benti á pakkana tvo sem þær systur gerðu á leikskólanum. „Við eigum pakka!“
-
jólapeysa
ég vinn ekki ljótujólapeysukeppnina í vinnunni, en ef það væri jólasveinaderhúfuflottukeppni þá væri sigurður orðinn sigurviss

jólasveinaderhúfa









