Blog
-
Sólgleraugu
þegar dætur þínar eru búnar að hirða öll flottu sólgleraugun
when the girls have taken all the cool sunglasses…
siggimus – ekki með flott sólgleraugu -
Stuttermabolur
Ég byrjaði að vinna hér í febrúar 2009. Ég man mjög vel að fyrsta eða annan miðvikudaginn sem ég vann var ofboðslega kalt – snjór og hálka. Ég man líka mjög vel að þegar ég kom hikandi og feiminn inn í matsal í hádeginu voru mjög margir í flís- og lopapeysum, og sumir þeirra börðu sér til hita. En það sem ég man best er að það voru líka nokkrir sem sátu þar á stuttermabolum og það stóð upp af þeim gufan – bókstaflega. Þau voru víst að koma úr sjósundi
Í dag, rétt tæpum 7 árum síðar, var ég á stuttermabol í hádeginu
-
Kanínur
Sandra: „Pabbi, af hverju borða kanínur bara gulrætur og kál og gúrkur og svoleiðis?”
Pabbi: „Ööö … af því að þær kunna ekki að fara í búð og kaupa pylsur … og eiga ekki heldur neina peninga!”
Sandra: „Það þarf líka að kaupa gúrkur í búð…”
-
Hátt hátt upp í geim
Ég ýti Telmu í rólu. Eins og venjulega biður hún um að fara „hátt hátt upp í geim!”
Hún skríkir af kæti og biður um meira. Ég ýti meira og bæti við smá snúningi og sveiflu.
Telma: „Jibbí! Rússíbanani!”
-
Grjónagrautur í ofni
https://siggimus.com/siggimus/2014/07/12/10390/Svona átti ég bágt fyrir aðeins tæpum tveimur árum.
en ekki lengur!!
siggimus hefur uppgötvað GRJÓNAGRAUT Í OFNI!
-
Panda
Aðeins 99,9% geta fundið pönduna á innan við mínútu!
Hvar er pandan? -
Hefur aldrei langað eins mikið til að setjast á borð og núna
Ísbjarnarborð sem ekki má setjast á -
Í sjónvarpinu syngur Diddú
Pabbi: „Vilt þú syngja svona?“
Sandra: „Nei“
P: „Þú þarft ekki að syngja þetta lag, bara e-ð skemmtilegt?“
S: „Rassi, rassi trallala?“