Á fundi hjá Lýsi: „En að hafa innsiglin þannig að það sé hægt að opna þau í einni tilraun, án vopna?“
*Hlátrasköll*
„Þú ert nýr, ha?“

Á fundi hjá Lýsi: „En að hafa innsiglin þannig að það sé hægt að opna þau í einni tilraun, án vopna?“
*Hlátrasköll*
„Þú ert nýr, ha?“
Kom heim og fann stelpurnar í eldhúsinu með ristaða brauðsneið, eins og dáleiddar en samt skríkjandi af gleði — að horfa á smjör bráðna
Í nótt var Ance á (gluggalausu) baðherberginu að skipta um bleyju. Hún rétt náði að sjá bingóvinninginn áður en rafmagnið fór
Það er banki í ofnunum. Hver á að laga það? Á ég að gera það?
Þar sem ég var úti að hlaupa* og hlusta á nýju PJ Harvey plötuna fór ég að hugsa um Ivan Pavlov. Ef ég er bara búinn að hlusta á plötuna við þessar aðstæður, verður þá til sú skilyrðing að ég tengi þessi frábæru lög um alla framtíð við sársauka, pínu, svita, andnauð og almenna vanlíðan? Mun þetta eyðileggja fyrir mér tónleikana 6. nóvember?
(*Ef hlaup skyldi kalla. Trúi því ekki sjálfur, en ég var að klára viku 2 af C25K. Ég er búinn að „hlaupa“ meira á síðustu 2 vikum en á sl. 20 árum þar á undan. Vúpp vúpp!)
trúi því ekki sjálfur, en ég var að klára viku 2 af #C25K
hef hlaupið meira á 2 vikum en á sl. 20 árum
Þegar uppskeran kemur í hús er fyrir öllu að eiga vandaðan kartöflubursta
Stelpurnar (6 & 4,5 ára) á fyrstu skautaæfingunni
Þær: meira á bossanum en uppréttar
Ég: passa að þær sjái mig ekki veina af hlátri
Double trouble on the ice
Telma: „Gúmmí góður! Hættu að orma eftir mér!“
Hvaða heilaþvegni pappakassi segir að venjulegt og honnínött sé bæði betra?
Annað bragðast eins og pappi, en hitt er skv. skilgreiningu nammi
Mamma: „Pabbi! Þú ert kominn snemma heim!“
Pabbi: „Já, ég var svo duglegur í vinnunni.“
Sandra: „Varst þú duglegastur?“
Pabbi: „Ööö… já!“
Sandra: „En hver var óþekkastur?“