Þessa dagana syngur Sandra frumsamið lag hástöfum:
Remúlaði í mörg ár!
Hver vill syngja með mér?
Þessa dagana syngur Sandra frumsamið lag hástöfum:
Remúlaði í mörg ár!
Hver vill syngja með mér?

Þegar það tekur þig 2 daga að losa stíflu í þvottahúsinu, því fyrri eigandi setti hilluvegg OFAN á niðurfallið
Setti hausinn í þennan bita. Byggingin skalf. Ekkert blóð, en ég man reyndar ekkert sem gerðist fyrir 12. maí

það var strætótt sig

Pabbi: „Ertu rúsína?“
Telma: „Nei!“
P: „Ertu sykursnúðarúsínubollurass?“
T (grætur): „Pabbi, þú kallaðir mig rass!“
trúðapiss
mannveskja
flottavél
Í Krónunni í Mosó.
Sandra potar í pabba sinn og bendir mjög áberandi „Pabbi! Sérðu manninn þarna … Pabbi, sérðu hann! … Sjáðu pabbi, hann er þarna!!“
Pabbi lítur upp og þarna stendur í öllu sínu veldi Gunnar (Gussi) Jónsson (lék Fúsa í Fúsa).
Hikandi, örlítið smeykur pabbi: „Ööö, við skulum ekki hérna … það er ekki fallegt að … já, ástin mín?“
Sandra: „Hann er í bleikum bol með einhyrningi!!“
„Þú ert svo neikvæður!“
Ein 6 ára ekki sátt með pabba sinn, sem vildi ekki kaupa neitt sem hún bað um í búðinni…
Korpúlfsstaðir, Lágafellskirkja, Hallgrímskirkja (séð frá rótum Esjunnar) er meðal þess sem kallað hefur verið Frozen kastali
ok, nú vantar mig bara kúst og skauta

Uppfært: Það þarf auðvitað enga skauta í krullu…
