Telma botnar ekkert í því að einhver kalli búðina sína tojsarass
Blog
-
-
Having tasted brains, I now understand the motivation of zombies much better

brains -
Sértrúarsöfnuðir sem ég fæ engan botn í:
#1: Fólk sem gengur um í vinnunni á sokkaleistunum
Fánýtur fróðleikur: leistar þýðir sokkar, svo ef þú segir sokkaleistar ertu í raun að segja sokkasokkar
-
Langar að stofna hreyfingu í kringum það að hringja brosandi í IKEA og biðja um aðstoð við að setja saman mublurnar. Alltaf. Hver er með?

„Góðan daginn, ég skil ekki neitt! Ég var að kaupa hjá ykkur glerskál, en það fylgir enginn sexkantur?!“
-
málver > malware
-
Þegar þú opnar óvart Safari á æpaddnum og finnur þar 78 einmana og yfirgefna flipa eftir að börnin hafa óvart potað í auglýsingar
-
Ísland — feit pæling sem gekk ekki upp
-
Ungur maður (þriggja mánaða og þriggja daga) bíður þolinmóður eftir systrum sínum með pabba gamla

siggimus og Albert bíða -
20 árum síðar — á snjallsímaöld — koma grifflingarnir sterkir inn aftur

Grifflingar – grifflur með innbyggða vettlinga 
Grifflingar – grifflur með innbyggða vettlinga -
Í nótt lét Albert (14m) eins og andsetin bestía á amfetamíni í 2,5 klst
Í morgun fann ég þetta í eldhúsvaskinum

Brotið eldfast mót
Nú hummar Telma jólalög
Þið sem hafið lesið Opinberunarbókina, hvað gerist aftur næst?
-
Ekki gleyma að sá sem ekki kýs afsalar sér réttinum til að rífa kjaft yfir ástandinu næstu fjögur árin
-

Er ekki leið