Blog

  • Torkennileg hljóð

    Rumskaði í morgun við einhver torkennileg hljóð.

    Um leið og ég áttaði mig á því að þetta væri líklega vekjari stökk ég fram úr rúminu og hljóp í ofboði til að athuga hvort börnin væru með púls

  • Lego

    þegar þú stígur á Legokubb fyrir framan börnin og segir ekki eitt einasta fokkings efforð

    ????

  • Batterí

    Batteríið í símanum mínum er ónýtt, dugar ekki í klukkutíma notkun. Barn missir símann í gólfið. Tek upp, skoða. „Ó nei, skjárinn er brotinn!“ 🙁

    Skoða betur „Ó nei, skjárinn er ekki brotinn, þetta var bara hár!“ :'(

  • Hvernig stendur á þessari þöggun um að Lína hafi verið långfyrsti strumpurinn?

  • Nýi gaurinn

    Finndu nýja gaurinn!!

    Fengið héðan
  • Batterí

    Þú veist að batteríið er að byrja að slappast þegar síminn slekkur á sér þegar batteríið er komið alla leið niður í

    … wait for it…

    … wait for it…

    … wait for it…

    65%

  • Masha i Medvedi

    Rússneska sveitin ???? ? ??????? gerði smellinn slagara um höfuðborgina

    Masha i Medvedi – Reykjavik

    Þau eiga líka þennan banger

    Masha i Medvedi – Lyubochka
  • S/o á gráhærða gaurinn sem dældi fullan tank á jepplinginn sinn í hríðinni í þunnum jakka og gallastuttbuxum

  • Fjarstýringarþjónustan ehf.

    Eftir nokkurra klukkutíma ítarlegar rannsóknir hef ég komist að því að það sé markaður fyrir Fjarstýringarþjónustuna:

    Þú hringir og fyrir litlar 44.900 kr. mætum við með fjarstýringu fyrir myndlykilinn þinn á innan við 30 mínútum

  • Sokkaninjur

    Ó að kötturinn minn stæði sig svona vel í baráttunni við sokkaninjurnar

  • Heimilislaus róni

    Pro tip: Ef þú gengur um með hár eins og heimilislaus róni í 2-3 mánuði mun ólíklegasta fólk segja eitthvað fallegt þegar þú loksins ferð í klippingu

  • Ljót orð

    Sandra (7 ára): „X er búinn að skrifa öll ljótu orðin í pennaveskið sitt! Hann skrifaði bitsj, fokk og sjett!“

    Pabbi: „Jedúddamía!“

    Telma (6 ára): „En hvað er bitsj?“

    P: „Ööööö … svona vond pía“