siggimus vs the cows
-
nös á ketti
Telma setur tvær skeiðar af hrísgrjónum og litla flís af kjúkling á diskinn. Pabbi er ekki impóneraður: *hnuss* „Þetta er ekki upp í nös á ketti!“ T: „Júts!! Veistu hvað nös á ketti er lítil?“ *sýnir* Sandra: „Hver setur kjúkling í nös á ketti?“
-
Þrjú börn: „Pabbi, megum við fá heitt kakó?!“ Pabbi: „Jájá. Ég var að kaupa nýja dós. Bara ekki setja allt of mikið“ 3b: „Vei! Við getum sko alveg sjálf!“ Pabbi: *lítur undan í 3 mínútur*
-
Díll aldarinnar
Sandra og Telma suða um að fá að fara í sjoppu að kaupa nammi: „Pabbi, þú mátt eiga peninginn sem við fáum til baka!“
-
Í sjónvarpinu: „Gerum þetta saman! Byko“ Albert: *fliss* „Píkó!“ 😀 😀
-
Fór lúpulegur beint af jólaballi barnanna í einu sjoppuna í hverfinu til að reyna í desperasjón á síðasta séns að skítredda nammi og gjöfum fyrir stofujólin á morgun. Hitti þar foreldra nær allra hinna barnanna í sömu dapurlegu erindagjörðum
-
Dóttir borðar brúna lagköku: „Er þetta búið til úr piparkökum?“
-
Nær
Pabbi byrjar að vaska upp eftir kvöldmatinn. Telma er ekki búin að borða: „Heyrðu! Ég ætlaði að vaska upp!“ P hættir að vaska upp: „Ó, fyrirgefðu!“ T: „Pabbi, hver er nær, sá sem situr beint á móti mér eða sá sem situr á ská á móti mér?“ P skilur ekkert: „Ööööö, sá sem situr beint…
-
Hvernig í ósköpunum stendur á því að tímarit bænda heitir Bændablaðið þegar það gæti heitið Réttatíminn?
-
Telma, nær sjö ára, veik í heimspekilegum pælingum: „Af hverju heitir þetta OSTAhnífur? Það er hægt að nota þetta til að skera allskonar!“ Pabbi: „Er það?“ T: „Já, kartöflur! Og gulrætur!“ P: „Og melónur?“ T: „Nauts! Ekki melónur!!“
-
Að fara í hangman með sex ára stúlku með gubbupest getur verið áhugavert: ískábur, fristiskápur, gubuskál, æla og rós (sem misritaðist óvart)
-
Efforð
Stelpurnar vöknuðu í nótt og voru klukkutíma að sofna aftur. Þær fóru í kapp niður til að kíkja, og byrjuðu strax að hnakkrífast og öskurgrenja Efforðið, Stekkjastaur, fokkings efforðið á þig
-
„Ég gat þetta allt, nema ég veit ekki hvort þetta í miðjunni er hollt!“ Telma, sem verður sjö ára í febrúar og HEFUR ALDREI SÉÐ TOBLERONE