siggimus vs the cows
-
Ostur
Fréttamaður: „Hvernig duttuð þið niður á þessa frábæru uppskrift að þessum geggjaða gríska osti?“ Ostagerðamaður: „Tja, við vorum í marga mánuði að feta okkur áfram…“
-
Listi
-
Hver paurinn!
-
Trackpad á fartölvunni hættur að virka. Control panel. Fikt. Ekkert. Gúggl. Uppfæri drivera. Restart. Ekkert. Meira Gúggl. Driverar beint frá framleiðanda. Restart. Ekkert. Enn Gúggl. Ekkert. Þrír klukkutímar. Ekkert. Hmmm, hvað gerist ef ég ýti á þennan takka..?
-
Albert galdrar að ljósin á bílnum blikka reglulega: „Fokkus pokkus“
-
Afi minn og amma mín út’á Bakka bjúga. Þau eru bæði sæt og fín, þangað vil ég fljúga ?? svona rímar það amk
-
Rúlla
Albert hefur uppgötvað gleðina sem fylgir því að rúlla klósettpappír eftir gólfinu
-
Klemmd taug
Klemmdi taug í baki fyrir viku. Taugin losnað loksins, en restin af bakinu er í tómu djöfuls fokki. Ef ég sit lengur en fimm mínútur er ég eins og níræður kall á biðlista eftir mjaðmaskiptiaðgerð þegar ég stend upp aftur og kjaga af stað
-
espresso
Fyrsti espresso-bollinn eftir magakveisu vekur upp sérkennilega blöndu eftirvæntingar og kvíða Nefndi þetta við vinnufélaga til margra ára. Vtmá: „Þú hefur ekki hugleitt að sleppa bollanum? Svona fyrst þú ert orðinn clean?“ Ég: *rétti út höndina* „Sæll, Sigurður heiti ég mús. Við höfum augljóslega aldrei hist“
-
Að skipta um vafra í símanum er góð skemmtun, sérstaklega ef maður beið þar til maður var búinn að heimsækja sirkabát allar heimsins heimasíður og fær að taka annan rúnt í að samþykkja vafrakökur. Toppnæs. Mæli með. 5/7
-
Kúlugúbbar kenna yngri kynslóðinni að senda bréf, sem mun koma í góðar þarfir ef þau einhvern tíma fara aftur í tímann og þurfa bráðnauðsynlega aðstoð innan 2ja til 3ja vikna
-
Þú!
„Pabbi, mig var að dreyma að það var kjúklingur sem labbaði til mín og sagði Góðan daginn.“ „Svo sagði hann Hvað er í matinn hjá þér? Og ég sagði Þú!“