siggimus vs the cows
-
Flott tölva
Þegar Barbí á flottari tölvu en þú
-
Gaur: „Gætirðu sagt okkur hvernig eru danskir fingravettlingar eru búnir til?“ Fingravettlingagerðarmaður: „Tja, ég veit ekki hvernig aðrir gera, en ég handsker þá“
-
eff æ ar í æ en sí ei æ ar ó
Man enn gæsahúðina sem ég fékk í Húnaveri verslunarmannahelgina ’89 þegar ég gekk fram á einhvern snilling með Standing on a Beach í gettóblasternum Spáið í að gera þessa plötu árið 1985!
-
Ekki segja
Bekkjarsystir Telmu kom heim með henni eftir skóla í gær. Mikið fjör, mikil læti. Hlutirnir voru aðeins teknir að róast þegar henni verður litið út um gluggann og rekur upp skaðræðisöskur. Fyrir utan var bíll að keyra upp að húsinu. Hún hljóp öskrandi upp á efri hæðina: „EKKI SEGJA PABBA HVAR ÉG EEEEEEEERR!!!!“
-
Fjör í verkfalli
Pt. i Albert: *opnar frystinn* „Má ég fá ís?“ Pabbi: „Nei“ A: *mikil vonbrigði. mikið hugsað* A: „Pabbi … ekki horfa!!“ Pt. ii Albert: *horfir heillengi á Hvolpasveit* Pabbi: *læðist til og kveikir á vinnutölvu, vinnur aðeins* A: *kemur* „Akkuru er ljós hér? Hvað er þessi takki?“ *ýtir* Vinnutölva: *slekkur á sér* P: *vaskar upp*…
-
Vinkona kom heim með dóttur minni í gær. Mikið fjör, brjáluð læti. Svo þegar aðeins var farið að róast sá stúlkan bíl keyra upp að húsinu. Hún rak up skaðræðisöskur, stökk upp og hljóp upp á efri hæðina, gargandi: „EKKI SEGJA PABBA HVAR ÉG EEEEEEEERR!!!!“
-
Klaki
Þegar von er á gestum þarf að klakahreinsa. Það var bæði mun erfiðara og töluvert skemmtilegra en ég átti von á
-
18 ára
Vakandi til miðnættis yfir bjór & The sixth sense á RÚV. Líður bara eins og ég sé 18 ára aftur!
-
KSÍ?
Yfir fréttum: „Pabbi, hvað er KSÍ?“ Pabbi: *útskýrir* Barn: „Knakk Birnu Samband Íslands?“
-
Skæri
Pabbi: „Hvar eru skærin?“ Dóttir: „Uppi. Það var einhver að klippa sófann!“
-
Art lover
Listunnandi dáist að listaverki stóru systur Art lover admiring big sister Sandra’s work of art
-
Leika með tannbursta
Telma: „Pabbi …“ *togar í ermi* Pabbi beygir sig niður og ber eyrað að munni Telmu. Telma *hvíslar*: „Ég þarf að segja þér leyndarmál. Albert var að leika sér með tannbursta og henti Söndru bursta í klósettið. En þetta er allt í lagi, ég er búinn að skola hann og setja á sinn stað“