siggimus vs the cows

  • beittur

  • Panta pizzu: Mmmmm, nammi namm, nóg handa öllum! Jafnvel nokkrar sneiðar til að maula á morgun Panta pizzu svo börnin heyri til: Bíddu, hvaðan koma öll þessi börn og hver á þau? Jess! Ég náði einni sneið og íbitinni brauðstöng. Er til cheerios?

  • Góðan daginn. Ég heiti siggi mús og ég á við drykkjuvandamál að stríða

  • Ég er aðeins hattur í lúdói æðri máttarvalda

  • Úff hvað væri nú skrýtið að vakna upp við að vera búinn að eyða hálftíma af vinnudeginum í að horfa Hæ Sámur á netinu. Sjiiii hvað væri skrýtið Ef það hefði gerst sko

  • Klukkan er 6:23. Glaðbeittur ungur (tveggja og hálfs) maður sem nýverið tókst að „krivva“ upp í rúm foreldra sinna gefur út yfirlýsingu: „Pabbi, é búinn lúlla!“

  • Tvífarar

    Sandra: „Allir eiga tvífara sem er alveg eins og þau!“ Telma: „Tvífarinn minn á heima á Mars og heitir Mars Meló“

  • Sumar

    Sumir vilja meina að það sé komið sumar

  • Vesen

    Þegar Albert lendir í veseni í æpaddnum: „Pabbi, bílað júpúp!“

  • Heimsókn á skautasvell

    Heimsókn á skautasvell

    Ung stúlka rifjar upp nýlega heimsókn föður síns á skautasvell. Það eina sem vantar á myndina er grindin sem gamli maðurinn ríghélt sér í

  • 86%

    86% of fuel never reaches wheels

  • Ber

    Telma: „Má ég segja brandara? Það voru tvö ber og eitt berið sagði „Mér er kalt.“ Þá sagði hitt berið: „Það er ekki skrítið, því þú ert ber!““ Pabbi: „Haha, þetta var fyndið!“ Sandra: „Hey! Þegar ég sagði þennan brandara um daginn þá fórstu ekkert að hlæja og sagðir bara „Ertu ekki alltaf að segja…