{"id":2081,"date":"2009-02-28T15:48:21","date_gmt":"2009-02-28T15:48:21","guid":{"rendered":"http:\/\/vu2057.freddie.1984.is\/siggimustest\/?page_id=2081"},"modified":"2009-02-28T15:48:21","modified_gmt":"2009-02-28T15:48:21","slug":"glefsa-ur-lifi-ofsotts-manns","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/siggimus.com\/siggimus\/writing\/glefsur\/glefsa-ur-lifi-ofsotts-manns\/","title":{"rendered":"glefsa \u00far l\u00edfi ofs\u00f3tts manns"},"content":{"rendered":"<p>\u00fe\u00f3 siggimus hafi n\u00fdveri\u00f0 tekist \u00e1 hendur fer\u00f0alag allmiki\u00f0 og spennandi  \t(best) f\u00e6r saga \u00feess a\u00f0 b\u00ed\u00f0a framk\u00f6llunar lj\u00f3smynda, og ver\u00f0a herlegheitin  \ts\u00ed\u00f0ar meir ger\u00f0 l\u00fd\u00f0um lj\u00f3s \u00e1 vef siggamus ef gu\u00f0ir og g\u00e6fur lofa og siggamusi  \tendist aldur til. segir siggimus og skrifar ef, \u00fev\u00ed siggimus hef or\u00f0i\u00f0  \tvissar grunsemdir um a\u00f0 hugur \u00e1kve\u00f0inna gu\u00f0a s\u00e9 helstil illu blandinn  \t\u00ed siggamuss gar\u00f0. raunir undanfarinna daga geta ekki veri\u00f0 af \u00f6\u00f0rum toga  \tsprottnar. siggimus er leiksoppur einn, gr\u00e6ni b\u00edllinn \u00ed matadori gu\u00f0anna.  \tfylgja \u00feessu til sta\u00f0festingar tv\u00e6r fr\u00e1sagnir \u00far l\u00edfi siggamuss, og huglei\u00f0ingar  \t\u00fatfr\u00e1 \u00feeim.<\/p>\n<h2>1. ertu alveg sikker a\u00f0 \u00fe\u00fa heitir ekki kristj\u00e1n?<\/h2>\n<p>s\u00edminn siggamuss hringir, og karlmannsr\u00f6dd bi\u00f0ur \u00e1 \u00fatlensku um christian.  \t  Af einl\u00e6gri grei\u00f0asemi tj\u00e1ir siggimus manninum \u00e1 hans eigin sproki a\u00f0  \t  sl\u00edkur b\u00fai enginn \u00ed \u00feessu n\u00fameri, enda veit siggimus ekki betur. vi\u00f0m\u00e6landinn  \t  bregst \u00f3kv\u00e6\u00f0a vi\u00f0 og vill s\u00ed\u00f0ur en svo una \u00feessari minni ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u.<\/p>\n<p>\u201certu viss?\u201d spyr hann [samtali\u00f0 hefir til h\u00e6g\u00f0arauka veri\u00f0 \u00fe\u00fdtt \u00e1  \t  \u00edslensku].<\/p>\n<p>\u201cnokku\u00f0,\u201d svarar siggimus \u00e1kve\u00f0i\u00f0, en \u00fe\u00f3 \u00e1n nokkurs hroka.<\/p>\n<p>\u201cer hann ekki sonur \u00feinn?\u201d spyr \u00fe\u00e1 kau\u00f0i. siggimus reynir a\u00f0 gera manninum  \t  grein fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 siggimus hef\u00f0i a\u00f0 \u00f6llum l\u00edkindum or\u00f0i\u00f0 \u00feess var ef  \t  siggimus \u00e6tti son sem h\u00e9ti christian, s\u00e9r \u00ed lagi byggi hann \u00e1 sama heimili  \t  og siggimus.<\/p>\n<p>\u201chva\u00f0 heitir \u00fe\u00fa?\u201d l\u00edklega vonar hann a\u00f0 siggimus komi upp um siggamus  \t  og gangist vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 heita eftir allt saman kristj\u00e1n.<\/p>\n<p>\u201csiggimus,\u201d honum ver\u00f0ur ekki k\u00e1pan \u00far \u00fev\u00ed kl\u00e6\u00f0inu.<\/p>\n<p>\u201cekki christian?\u201d<\/p>\n<p>\u201cekki einu sinni p\u00ednu,\u201d segir siggimus, tekinn a\u00f0 l\u00fdjast, en heldur            \u00fe\u00f3 uppi hetjulegum v\u00f6rnum.<\/p>\n<p>\u201chva\u00f0a s\u00edman\u00famer er \u00feetta?\u201d ma\u00f0urinn treystir siggamusi engan veginn  \t  og telur siggamus auglj\u00f3slega fara me\u00f0 lygim\u00e1l.<\/p>\n<p>\u201c5511179\u201d svarar siggimus, samkv\u00e6mt bestu vitund.<\/p>\n<p>\u201cj\u00e1, \u00fea\u00f0 er einmitt n\u00fameri\u00f0 sem christian l\u00e9t mig f\u00e1 til a\u00f0 hringja  \t  \u00ed.\u201d<\/p>\n<p>\u201cj\u00e6ja?\u201d<\/p>\n<p>\u201caf hverju l\u00e9t hann mig f\u00e1 \u00feetta s\u00edman\u00famer ef hann er ekki \u00fearna?\u201d<\/p>\n<p>hann \u00e6tlar a\u00f0 taka siggamus \u00e1 s\u00e1lfr\u00e6\u00f0inni. \u00e1 endanum mun siggimus l\u00e1ta  \t  bugast og \u00feekkja t\u00e9\u00f0an kristj\u00e1n, e\u00f0a \u00fea\u00f0 sem betra er, <em>vera<\/em> t\u00e9\u00f0ur  \t  kristj\u00e1n.<\/p>\n<p>\u201c?\u201d<\/p>\n<p>\u201chvar \u00e1ttu heima?\u201d hn\u00fdsnin vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 ver\u00f0a \u00f3s\u00e6mileg.<\/p>\n<p>\u201c\u00feorfinnsg\u00f6tu 2,\u201d svarar siggimus, enn samkv\u00e6mt sannf\u00e6ringu sinni.<\/p>\n<p>\u201cj\u00e1, hann b\u00fdr einmitt \u00e1 \u00feorfinnsg\u00f6tu 4!\u201d<\/p>\n<p>\u201csko minn kall.\u201d<\/p>\n<p>\u201cer \u00feetta ekki beint \u00e1 m\u00f3ti sp\u00edtalanum?\u201d<\/p>\n<p>\u201cbeint og ekki beint,\u201d svarar siggimus.<\/p>\n<p>\u201cj\u00faj\u00fa, \u00feetta er beint \u00e1 m\u00f3ti sp\u00edtalanum,\u201d lei\u00f0r\u00e9ttir s\u00e1 erlendi siggamus.<\/p>\n<p>\u201cj\u00e1?\u201d<\/p>\n<p>\u201cj\u00e1, \u00feetta er r\u00e9tt hj\u00e1 sp\u00edtalanum! \u00feekkir\u00f0u ekki christian?\u201d hann skal  \t  sannf\u00e6ra siggamus.<\/p>\n<p>\u201cnei, \u00fea\u00f0 gerir siggimus n\u00fa reyndar ekki.\u201d<\/p>\n<p>\u201c\u00feekkir\u00f0u ekki n\u00e1granna \u00feinn?\u201d<\/p>\n<p>\u201cnei.\u201d<\/p>\n<p>\u201c\u00feekkir\u00f0u ekki n\u00e1granna \u00feinn?\u201d<\/p>\n<p>\u201cekkert betur n\u00fa en siggimus ger\u00f0i fyrir \u00feremur sek\u00fandum.\u201d<\/p>\n<p>\u201cja h\u00e9rna!\u201d<\/p>\n<p>\u201cj\u00e6ja, j\u00e1.\u201d<\/p>\n<p>\u201cen af hverju er christian a\u00f0 l\u00e1ta mig f\u00e1 n\u00fameri\u00f0 hj\u00e1 n\u00e1granna s\u00ednum            ef hann \u00feekkir \u00feig ekki?\u201d hann reynir a\u00f0 hanka siggamus \u00e1 r\u00f6kvillu.            \u00fev\u00ed mi\u00f0ur fyrir erlendan er r\u00f6kvillan kristj\u00e1ns en ekki siggamuss.<\/p>\n<p>siggimus l\u00e6tur vera a\u00f0 v\u00edsa spurningunni \u00e1fram til \u00feeirra s\u00e9rfr\u00e6\u00f0inga  \t  sem siggimus hefur gruna\u00f0a um a\u00f0 hafa kristj\u00e1n til reglulegrar me\u00f0fer\u00f0ar,  \t  en svarar me\u00f0 ofbeldishneig\u00f0ri \u00fe\u00f6gn.<\/p>\n<p>siggimus er a\u00f0 \u00fev\u00ed kominn a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a manninum a\u00f0 leita kristj\u00e1ns inni  \t  \u00ed sk\u00e1pum og undir r\u00fami ef hann vill hinkra \u00e1 me\u00f0an, \u00feegar erlendur kve\u00f0ur  \t  vi\u00f0,<\/p>\n<p>\u201cheyr\u00f0u, \u00e9g pr\u00f3fa kannski bara a\u00f0 hringja \u00ed s\u00edma 5511179. kannski er  \t  christian \u00fear?\u201d<\/p>\n<p>\u201c\u00e1byggilega,\u201d segir siggimus og h\u00e6ttir vi\u00f0 a\u00f0 brenna ofan af m\u00f6gulegum  \t  kristj\u00e1ni \u00e1 nr. 4 kofann, \u00ed bili.<\/p>\n<h2>2. eir\u00edkur<\/h2>\n<p>s\u00edminn hringir. siggimus svarar. \u00ed s\u00edmanum er karlmannsr\u00f6dd, eigandinn  \t  l\u00edkast til \u00e1 aldrinum 40-50 \u00e1ra.<\/p>\n<p>\u201cer eir\u00edkur vi\u00f0?\u201d<\/p>\n<p>\u201cnei, hann er \u00fati \u00ed fj\u00f3si.\u201d<\/p>\n<p>\u201cj\u00e1?\u201d ekki vottar fyrir undrun e\u00f0a neinu \u00fev\u00ed \u00ed t\u00f3ni mannsins sem gefur  \t  til kynna anna\u00f0 en a\u00f0 eir\u00edkur eigi fullt erindi \u00ed fj\u00f3si\u00f0.<\/p>\n<p>\u201cj\u00e1, hann er a\u00f0 mj\u00f3lka k\u00fana.\u201d<\/p>\n<p>\u201cj\u00e6ja, veistu hven\u00e6r hann kemur aftur?\u201d hva\u00f0 \u00e6tti eir\u00edkur sosum a\u00f0  \t  vilja \u00ed fj\u00f3si\u00f0 anna\u00f0 en a\u00f0 mj\u00f3lka k\u00fana?<\/p>\n<p>siggimus gefst upp vi\u00f0 svo b\u00fai\u00f0, veifar hv\u00edtu flaggi, tilkynnir d\u00f3nanum  \t  \u00e1 a\u00f0 hann hafi fengi\u00f0 samband vi\u00f0 rangt n\u00famer og bi\u00f0ur hann allra n\u00e1\u00f0arsamlegast  \t  a\u00f0 yfirgefa l\u00ednuna hi\u00f0 snarasta. vill siggimus ekkert hafa vi\u00f0 svona  \t  sv\u00edn a\u00f0 skipta. siggamussins perlur eru \u00e6tla\u00f0ar \u00e6\u00f0ri l\u00edfverum.<\/p>\n<h2>3. huglei\u00f0ingar<\/h2>\n<p>er t\u00f3li\u00f0 var aftur lent \u00e1 s\u00edmanum l\u00f6g\u00f0u af sta\u00f0 eftirfarandi huglei\u00f0ingar:  \t  hva\u00f0 er a\u00f0 ver\u00f0a um heiminn \u00feegar jafnsj\u00e1lfsag\u00f0ur hlutur mannlegra samskipta  \t  og \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00e1tta sig \u00e1 og gangast vi\u00f0 \u00fev\u00ed ef pissa\u00f0 er \u00e1 mann er a\u00f0 engu  \t  haf\u00f0ur? a\u00f0 vinna einhvern sem ekki a\u00f0eins \u00e1ttar sig ekki \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann  \t  hafi sk\u00edttapa\u00f0, heldur \u00fea\u00f0 sem verra er og sv\u00ed\u00f0ur s\u00e1rast; gerir s\u00e9r  \t  ekki einusinni grein fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 keppni hafi \u00e1tt s\u00e9r sta\u00f0, er \u00e1l\u00edka  \t  miki\u00f0 afrek og a\u00f0 m\u00f3\u00f0ga g\u00farku, e\u00f0a a\u00f0 vinna brau\u00f0rist \u00ed \u00fer\u00e6tum. \u00fea\u00f0  \t  er ekki h\u00e6gt a\u00f0 vinna nema einhver tapi. g\u00farkur, brau\u00f0ristar og f\u00edfl  \t  kunna ekki a\u00f0 tapa.<\/p>\n<p>\u00feessar huglei\u00f0ingar og fleiri \u00e1ttu hug siggamuss allan n\u00e6stu m\u00edn\u00faturnar,            \u00feartil siggimus s\u00e1 samhengi\u00f0. \u00ed l\u00edfi siggamuss s\u00ed\u00f0an siggimus sneri            aftur fr\u00e1 praha, \u00fear sem siggimus haf\u00f0i teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed tilraun til a\u00f0            reisa babelsturn, var \u00e1kve\u00f0i\u00f0 munstur: f\u00f3lk hringdi \u00ed siggamus og ba\u00f0            um kristj\u00e1na sem siggimus \u00e1tti ekki til, og \u00fer\u00e6tti vi\u00f0 siggamus um hvort            siggimus \u00e6tti \u00fe\u00e1 til e\u00f0a \u00feekkti. f\u00f3lk hringdi og ba\u00f0 um eir\u00edka, og t\u00f3k            ekki eftir \u00fev\u00ed ef siggimus h\u00e6ddi \u00fea\u00f0 og spotta\u00f0i af \u00f6rgustu gargandi            snilld. einnig ber \u00feess a\u00f0 geta a\u00f0 hinga\u00f0 hefur um hr\u00ed\u00f0 borist afgangsp\u00f3stur            s\u00e1 er \u00edslandsp\u00f3stur hf. losnar ekki vi\u00f0 eftir \u00f6\u00f0rum lei\u00f0um. p\u00f3sti hinna            \u00fdmsustu \u00feorbjarna, sigurhjalta, gu\u00f0j\u00f3na sem og sigr\u00fana sem br\u00e9fberum            hefur ekki tekist a\u00f0 hafa uppi \u00e1 eftir \u00f6\u00f0rum lei\u00f0um vir\u00f0ist eki\u00f0 hinga\u00f0            me\u00f0 lastb\u00edlum og hann skilinn eftir \u00e1 \u00fer\u00f6skuldi vorum, oss til mikillar            arm\u00e6\u00f0u.<\/p>\n<h2>4. m\u00f3rall?<\/h2>\n<p>\u00fearf fleiri vitnanna vi\u00f0? \u00feetta er allt \u00e1 s\u00f6mu b\u00f3kina l\u00e6rt, og b\u00f3kin            s\u00fa fjallar ekki um tilviljanir, heldur ofs\u00f3knir. gamansamir gu\u00f0irnir            eru teknir a\u00f0 spila me\u00f0 undirrita\u00f0an og hafa hann \u00ed flimtingum; siggimus            er hattur \u00ed l\u00fad\u00f3i \u00e6\u00f0ri m\u00e1ttarvalda, og \u00f6rl\u00f6g hans \u00feau ein a\u00f0 b\u00ed\u00f0a n\u00e6sta            kasts teninganna. l\u00e1ti\u00f0 \u00feetta ykkur a\u00f0 kenningu ver\u00f0a. gu\u00f0irnir hafa            aldrei li\u00f0i\u00f0 dramb og hroka me\u00f0al dau\u00f0legra. \u00fev\u00ed bi\u00f0ur siggimus ykkur:            ekki sm\u00ed\u00f0a v\u00e6ngi, setja \u00e1 baki\u00f0 \u00e1 ykkur og reyna a\u00f0 flj\u00faga til gu\u00f0anna.            ekki sm\u00ed\u00f0a tr\u00f6ppu upp til himna. ekki reyna a\u00f0 skapa l\u00edf \u00far l\u00edfleysu.            ekki \u00e6tla ykkur gu\u00f0i, og s\u00ed\u00f0ast en alls ekki s\u00edst; aldrei reyna a\u00f0 drekka            50 bj\u00f3ra \u00ed einni lotu.<\/p>\n<p>-siggimus<\/p>\n<h3>ps:<\/h3>\n<p>just because i\u2019m paranoid, it doesn\u2019t mean they\u2019re not out to get me<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00fe\u00f3 siggimus hafi n\u00fdveri\u00f0 tekist \u00e1 hendur fer\u00f0alag allmiki\u00f0 og spennandi (best) f\u00e6r saga \u00feess a\u00f0 b\u00ed\u00f0a framk\u00f6llunar lj\u00f3smynda, og ver\u00f0a herlegheitin s\u00ed\u00f0ar meir ger\u00f0 l\u00fd\u00f0um lj\u00f3s \u00e1 vef siggamus ef gu\u00f0ir og g\u00e6fur lofa og siggamusi endist aldur til. segir siggimus og skrifar ef, \u00fev\u00ed siggimus hef or\u00f0i\u00f0 vissar grunsemdir um a\u00f0 hugur \u00e1kve\u00f0inna [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":4,"featured_media":0,"parent":2013,"menu_order":2,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"","meta":{"ngg_post_thumbnail":0,"footnotes":""},"class_list":["post-2081","page","type-page","status-publish","hentry"],"jetpack_likes_enabled":false,"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_shortlink":"https:\/\/wp.me\/PcQPg2-xz","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/siggimus.com\/siggimus\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2081","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/siggimus.com\/siggimus\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/siggimus.com\/siggimus\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/siggimus.com\/siggimus\/wp-json\/wp\/v2\/users\/4"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/siggimus.com\/siggimus\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2081"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/siggimus.com\/siggimus\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2081\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2082,"href":"https:\/\/siggimus.com\/siggimus\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2081\/revisions\/2082"}],"up":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/siggimus.com\/siggimus\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2013"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/siggimus.com\/siggimus\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2081"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}